DANS2LT05 - Túlkun og tjáning

lestur og menning ii, tjáning

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Tjáning, lestur og menning - DANS2TL05
Í áfanganum er megináherslan á bókmenntir en jafnframt er áfram lögð áhersla á munnlega og skriflega tjáningu . Lögð er áhersla á að nemendur geti beitt meginreglum danskrar málfræði, hljóðfræði og setingarfræði bæði munnlega og skriflega. Lögð er áhersla á að nemendur séu meðvitaðir um notkun mismunandi stílbragða við ritun texta. Lögð er áhersla á að nemendur verði færir um að lesa flóknari texta en áður og geti áttað sig á dýpri merkingu þeirra. Nemendur kynnast helstu hugtökum við bókmenntagreiningu og fá þjálfun í að skrifa bókmenntaritgerðir. Mikil áhersla er sem fyrr lögð á að nemendur beri ábyrgð á eigin námsframvindu og sýni sjálfstæð vinnubrögð.

Þekkingarviðmið

  • menningu, hefðum, viðhorfum og gildum í dönsku þjóðfélagi
  • uppruna dönskunnar og skyldleika við íslensku
  • helstu hugtökum í bókmenntagreiningu
  • uppbyggingu ritgerða, meðferð heimilda og helstu hefðum um uppsetningu og skipulag ritaðs máls, s.s. greinamerkjasetningu.
  • orðaforða sem hæfir markmiðum áfangans.

Leikniviðmið

  • lesa sér til ánægju eða upplýsinga texta sem gera miklar kröfur til lesandans, ýmist hvað varðar orðaforða, túlkun eða stílbrögð.
  • beita mismunandi lestraraðferðum s.s. leitarlestri, yfirlitslestri, hraðlestri og námkvæmislestri
  • nota tungumálið í samræðum og til frásagnar og beita málfari við hæfi
  • beita ritmáli í mismunandi tilgangi, bæði formlegum og óformlegum
  • vinna með bókmenntatexta á fjölbreyttan hátt
  • nota meginreglur í málfræði, hljóðfræði og setningarfræði
  • skilja almennt talað mál og þekkja algengustu orðasambönd sem einkenna talað mál.

Hæfnisviðmið

  • skilja almennt talað mál, fjölmiðlaefni, fræðigreinar og annað flóknara efni hvort sem hann þekkir umræðuefnið eða ekki
  • taka þátt í skoðanaskiptum og færa rök fyrir sínu máli, geta brugðist við óvæntum spurningum og geta tjáð sig á skýran og áheyrilegan hátt
  • tileinka sér efni ritaðs texta af ýmsu tagi, geta lesið á milli línanna og áttað sig á dýpri merkingu textans og lagt gagnrýnið mat á hann
  • beita rithefðum sem við eiga í textasmíð, m.a. um inngang með efnisyrðingu, meginmál með afmörkuðum efnisgreinum og niðurlag
  • skrifa skýran og vel uppbyggðan texta sem tekur mið af lesandanum
  • auka meðvitund um eigin færni í tungumálinu og eigin leiðir til að tileinka sér málið.
Nánari upplýsingar á námskrá.is