UMHV2UN05 - Umhverfisfræði fyrir alla

umhverfisfræði fyrir alla

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Í áfanganum, sem ætlaður er nemendum af öllum námsbrautum, er lögð áhersla á að nemendur verði meðvitaðri um þátt einstaklingsins í umhverfisvernd. Nemendur kynnast aðferðum til að áætla áhrif breyttra lifnaðarhátta á umhverfið og leitast er við að auka ábyrgðartilfinningu einstaklingsins gagnvart bæði sínu nánasta umhverfi og umhverfisins á hnattvísu. Nemendur kynnast helstu umhverfisvandamálum sem við glímum við í heiminum. Fjallað verður um mengun, veðurfarsbreytingar, dýr í útrýmingarhættu, og auðlindaþurrð. Kynnt verða hugtökin „burðargeta“ og „sjálfbærni“, og hugtökin tengd fjölgun mannkyns og aðstæðum á jörðinni. Enn fremur verður fjallað um sjálfbæra auðlindanýtingu. Í áfanganum er leitast við að auka hæfni nemenda í að túlka gögn sem tengjast umhverfismálum á gagnrýninn hátt. Gert er ráð fyrir að nemendur vinni með gögn sem tengjast umhverfismálum. Nemendur verða hvattir til að velta því fyrir sér hvað móti tengsl manns og náttúru. Fjallað verður um muninn á hagrænum og fagurfræðilegum verðmætum og nemendur hvattir til að velta því fyrir sér hvað hafi áhrif á verðmætamat hvers og eins þegar kemur að því að meta verðmæti í náttúrunni.

Þekkingarviðmið

  • Fjölbreyttum leiðum einstaklingsins til vistvænni lifnaðarhátta
  • Hugtökunum burðargeta (e. carrying capacity) og sjálfbærni (e. sustainability) og hvernig þessi hugtök tengjast nýtingu náttúruauðlinda og fjölgun mannkyns
  • Hlýnun jarðar; orsökum, afleiðingum og ábyrgð einstaklingsins
  • Muninum á hagfræðilegu og fagurfræðilegu verðmætamati í tengslum við nýtingu náttúruauðlinda og náttúruvernd.

Leikniviðmið

  • Endurnýta endurnýtanlegan efnivið og endurvinna sorp í þeim tilgangi að minnka sorp sem þarf að farga
  • Meta áhrif hversdagslegra athafna á umhverfið, m.a. með því að nýta sér hugtakið „vistspor“ (e. ecological footprint)
  • Fjalla um umhverfismál út frá hagfræðilegum og fagurfræðilegum sjónarmiðum.

Hæfnisviðmið

  • Minnka ágang á náttúruauðlindir með vistvænni lifnaðarháttum
  • Minnka magn urðaðs sorps með því að endurnýta og endurvinna það sem hægt er
  • Túlka á gagnrýninn hátt upplýsingar sem tengjast umhverfismálum
  • Vera virkur þátttakandi í umræðu um umhverfismál.
Nánari upplýsingar á námskrá.is