grunnáfangi í náttúrufræði
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Í þessum byrjunaráfanga er lögð áhersla á að nemendur kynnist náttúruvísindum á fjölbreyttan hátt. Í áfanganum er lögð áhersla á líffræði (vistfræði), efnafræði, umhverfisvísindi og landafræði (kortalestur). Í áfanganum er kynnt sú aðferðarfræði sem er sameiginleg náttúru- og raunvísindum. Í áfanganum verða eftirfarandi efnisþættir kynntir: eðli vísinda, helstu skref vísindalegra aðferða, SI-einingakerfið, mælinákvæmni og markverðir stafir, vistfræði, flokkun lífvera, lífverur í vistkerfi, hringrás kolefnis, framvinda vistkerfa, lífverur á Íslandi, efnafræði, atómið og frumefni, lotukerfið, efnatengi og efnahvörf, landafræði, notkun staðfræði- og þemakorta, mælikvarði landakorta, umhverfisvísindi, orsakir loftslagsbreytinga, afleiðingar loftslagsbreytinga á Íslandi.
Lögð er áhersla á að nemendur tengi þá þekkingu sem þeir öðlast í efnafræði, líffræði og landafræði við náttúru Íslands, umhverfi sitt og daglegt líf.
Þekkingarviðmið
- rannsóknaraðferðum í náttúru- og raunvísindum
- helstu ferlum vistkerfa
- uppbyggingu atóms
- uppbyggingu lotukerfisins
- muninum á staðfræðikortum og þemakortum
Leikniviðmið
- framkvæma verklegar æfingar og vinna úr þeim
- skrifa skýrslur í tengslum við verklegar æfingar
- búa til myndrit, m.a. línurit, og nota myndritin til að draga ályktanir
- teikna upp fæðuvef og skilgreina flutning orku og efnis innan fæðuvefsins
- lesa efnajöfnur og stilla þær
- aðgreina efni í frumefni, efnasambönd og efnablöndur
- nota lotukerfi
- nýta sér mælikvarða landakorta til að reikna út vegalengdir og flatarmál
- nýta sér hæðarlínur landakorta til að átta sig á hæðarmun einstakra staða á landakorti.
Hæfnisviðmið
- sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og bera ábyrgð á eigin námsframvindu
- vinna í hóp til þess að auka skilning á fyrirbærum náttúru- og raunvísinda
- tengja þekkingu sína á kolefnishringrás við gróðurhúsaáhrif og loftslagsbreytingar
- tengja þekkingu sína í efnafræði, líffræði og jarðvísindum við umhverfi sitt og náttúru Íslands.
Nánari upplýsingar á námskrá.is