SPÆN1ÞR05 - Rómanska-Ameríka, samskipti og menning

spænska þrjú

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: SPÆN1SP5
Viðfangsefni fyrri áfanga er rifjað upp og sett í nýtt samhengi. Áfram er unnið að aukinni færni nemenda í lesskilningi, tali, hlustun og ritun þar sem fléttað er inn í kennsluna menningu og sögu Rómönsku Ameríku. Textar verða smám saman lengri og þyngri og nemendur eru þjálfaðir meira í að lesa rauntexta á spænsku. Orðaforði er aukinn, nemendur þjálfast í nýjum málfræðiatriðum og að mestu er lokið við að fara yfir grundvallarþætti spænska málkerfisins. Frásagnir í nútíð og þátíð eru æfðar munnlega og skriflega og þurfa nemendur í auknum mæli að tjá sig munnlega í tímum. Nemendur læra að tala um áhugamál sín og heilsu og í þessum áfanga er farið í sögu, landafræði og menningu Rómönsku Ameríku. Nemendur þjálfast í að lesa sögur og ævintýri á spænsku og þjálfast í að skrifa slíka texta í þátíð. Stuðst verður við fjölbreyttar kennsluaðferðir þar sem tekið er mið af markmiðum áfangans. Áhersla verður lögð á að nemendur tjái sig sem mest á spænsku í töluðu og rituðu máli, og á fjölbreytta og skapandi verkefnavinnu þar sem tekið er tillit til áhuga nemenda eins mikið og unnt er. Námsefnið er með fjölbreyttum hætti, verkefnablöð frá kennara, efni á kennslukerfi, tónlist, myndbönd, leikir og ýmislegt efni af Netinu sem hjálpar við að komast nær spænskumælandi menningarheimi og eflir menningarlæsi nemenda. Áhersla er lögð á að nemendur beri ábyrgð á sínu eigin námi og sýni sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og skapandi hugsun.

Þekkingarviðmið

  • þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að ná leikni- og hæfnimarkmiðum áfangans
  • grundvallarþáttum spænsks málkerfis
  • spænskumælandi löndum, og fengið aukna innsýn í menningu, mannlíf, helstu samskiptavenjur og siði þjóðanna.

Leikniviðmið

  • fylgjast með frásögnum eða samtölum um almenn efni eða sérhæfðari málefni sem hann þekkir þar sem talað er skýrt og áheyrilega
  • lesa og skilja ýmiss konar texta á eigin áhugasviði eða texta um almennt og sérhæfðara efni sem fjallað er um í áfanganum og beita viðeigandi aðferðum eftir því hver tilgangurinn er með lestrinum hverju sinni
  • fylgja söguþræði í einföldum eða einfölduðum bókmenntatextum
  • taka þátt í almennum samræðum um efni sem hann þekkir eða hefur áhuga á og beita kurteisisvenjum, málvenjum og hljómfalli við hæfi
  • segja frá á skýran hátt í nútíð og þátíð og halda stutta kynningu á undirbúnu efni með því að beita orðaforða, setningagerð og framburði á sem réttastan hátt
  • skrifa samfellda texta um ýmis efni sem hann þekkir, t.d. mannlýsingar, lýsingar á stöðum, atburðum og umhverfi og geta betur en áður dregið ályktanir og tjáð eigin skoðanir
  • nota upplýsingatækni og hjálpargögn í tungumálanámi
  • tjá sig í mæltu og rituðu máli, sýni fram á skilning á formgerð og byggingu texta og sé meðvitaðri en áður um muninn á þessum málsniðum
  • fara eftir grundvallarreglum sem gilda um ritað mál og nota viðeigandi málfar.

Hæfnisviðmið

  • fylgjast með frásögnum og ná aðalatriðum úr fjöl- og myndmiðlum ef efnið er mjög kunnuglegt
  • afla sér ýmissa upplýsinga úr mæltu og rituðu máli, greina helstu atriði þeirra og hagnýta sér í námi og starfi
  • tileinka sér aðalatriðin í stuttum og/eða einföldum rauntextum af ýmsu tagi og geta dregið ályktanir af því sem hann les
  • lesa skáldskap af hæfilegu þyngdarstigi og tjá skoðun sína
  • takast á við flestar algengar aðstæður í almennum samskiptum og geta almennt bjargað sér á málinu
  • segja frá eigin þekkingu, skoðunum og tilfinningum sem og persónulegri reynslu
  • miðla á einfaldan hátt efni sem hann hefur aflað sér þekkingar á í ræðu og riti
  • skrifa um hugðarefni sín og áhugamál, ýmis málefni og atburði, ímyndaða eða raunverulega, í þátíð og nútíð
  • skrifa samantekt byggða á tilteknu efni, s.s. kvikmynd, blaðagrein, eða sögu.
Nánari upplýsingar á námskrá.is