LÝÐH1HR01 - Verklegar íþróttir, vorönn

hreyfing og lýðheilsa - verklegt

Einingafjöldi: 1
Þrep: 1
Forkröfur: Engar forkröfur
Áfanginn er verklegur og fer fram að hluta til í íþróttahúsi Varmá, ELDINGU-líkamsrækt og/eða utandyra. Kennst er tvisvar sinnum í viku og 50 mínútur í senn. Tímunum er annarsvegar skipt upp í Valtíma, þar sem nemendur geta valið um að fara í útihlaup/göngu/hjólatúr, í ræktina eða verið í íþróttasalnum og hinsvegar skipulagða tíma, þar sem nemendur taka þátt í æfingaráætlun frá kennara. Hreyfing (verklegt): Í verklega hlutanum er lögð áhersla á grunnþætti þols, styrktaræfingar og liðleika. 1) Þol: Fjölbreyttar aðferðir verða notaðar til að auka úthald, s.s útihlaup/ganga, þrektæki, stöðvaþjálfun og leikir. Reynt verður að hafa æfingar við áhuga, hæfi og getu hvers og eins. 2) Styrktaræfingar: Fjölbreyttar aðferðir verða notaðar til að bæta líkamsstyrk, s.s. æfingar með eigin líkamsþyngd eða í tækjasal. Reynt verður að hafa æfingar við áhuga, hæfi og getu hvers og eins. 3) Liðleiki: Lögð verður áhersla á teygjuæfingar eftir hvern tíma og miklvægi þeirra.

Þekkingarviðmið

  • hversu mikilvæg góð heilsa er fyrir framtíðina
  • hvað reglubundin hreyfing er góð forvörn fyrir ýmsa andlega og líkamlega sjúkdóma
  • mikilvægi úthalds-, styrktar- og liðleikaþjálfunar.

Leikniviðmið

  • að auka úthald sitt, styrk og liðleika með fjölbreyttum aðferðum sem henta hverjum og einum.
  • að reikna út æfingarpúls fyrir brennslu- og/eða þolþjálfun
  • aðferðum til að mæla þol, styrk og liðleika.

Hæfnisviðmið

  • nýta heilsulæsi sitt til að nálgast upplýsingar og nýta sér þær til að efla og viðhalda góðri heilsu.
  • Viðhalda og/eða bæta líkamlega heilsu.
Nánari upplýsingar á námskrá.is